Hundruð fugla hafa smitast af olíumengun 21. febrúar 2007 18:30
Tugir eða hundruð fugla hafa mengast af olíu sem lak úr flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað skammt frá Sandgerði. Mun meira virðist hafa verið eftir af svartolíu í skipinu en áður var talið. Vinnuflokkur Olíudreifingar er búinn að dæla um 25 þúsund lítrum af sjóblandaðri olíu úr tönkum Wilson Muuga, en nú er talið að á bilinu tíu til tuttugu tonn hafi lekið í sjóinn af olíubyrgðum skipsins, minna en áður var talið vegna þess hvað mikið reyndist vera eftir af olíunni í tönkum skipsins. Tugir eða hudruð fugla hafa hins vegar smitast af olíunni. Tveir æðarfuglar, karl og kerling fundust í olíbrákinni við Garð í gær. Karlinn lifði volkið ekki af en frúin fékk sápubað í Húsdýragarðinum í dag. Hilmar Össurarson starfsmaður í Húsdýragarðinum sem baðaði kolluna ásamt Hallveigu Guðmundsdóttur í dag, segir ekki hafa verið mikið af olíu í fiðri fuglsins. "Hún er frekar hressileg. Það voru samt flekkir á henni sem náðu upp á háls," segir Hilmar. Engu að síður hafi þurft að baða hana alla vegna þess að það voru olíublettir hér og þar á henni. Hilmar sagðist stórlega efast um að kollan gerði sér grein fyrir aðaðfarirnar við sápubaðið hafi verið til að hjálpa henni. Enda baðvatnið mun heitara en æðakollur eiga að venjast. Æðakollan var horuð og illa á sig komin þegar hún kom í Húsdýragarðinn. Hilmar segir því augljóst að hún hafi barist í olíunni eða öðrum hremmingum í einhvern tíma. Fuglinn verður sem allra styst í Húsdýragarðinum. "Bara meðan hún er að ná holdum og eðlilegur litur og lag er að komast á fiðrið. Við reynum að sleppa fuglum sem fyrst út í náttúruna og svo verða þeir bara að bjarga sér," segir Hilmar. Eftir að baðinu og þurrkun lauk fékk æðarkollan konunglega máltíð; loðnu og síld. En það mun svo taka hana einhverja daga að smyrja í sig eðlilegri fitu sem hún fær úr sérstökum fitukyrtlum. En eftir það verður henni vonandi allir vegir færir.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar ekki Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira