Innlent

Riða greinist í ám í Hrunamannahreppi

MYND/Vilhelm

Riða hefur greinst í tveimur ám frá bænum Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi. Landbúnaðarstofnun hefur tilkynnt landbúnaðarráðherra um málið. Riða greindist á bænum vorið 2001 en þá var öllu fé fargað og umhverfið hreinsað.

Engin sjúkdómseinkenni voru á ánum sem nú hafa greinst með riðu en hún greindist í heilasýnum sem tekin voru vegna reglubundins eftirlits með sjúkdómnum.

Landbúnaðarráðherra hefur verið tilkynnt um málið og vinnur Landbúnaðarstofnun nú að undirbúningi niðurskurðar og að samningagerð við ábúendur. Einnig er unnið að gagnasöfnun vegna faraldsfræðirannsókna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×