Innlent

Borgarstjóri heldur fast við andstöðu sína við klámráðstefnu

Borgarstjóri heldur fast við orð sín og yfirlýsingar um að hann fordæmi væntanlega ráðstefnu klámframleiðenda hér á landi. Ummæli hans hafa vakið athygli erlendra fjölmiðla

Mótmæli við fyrirhugaða ráðstefnu og skemmtiferð sem framleiðendur klámefnis ætla sér að halda hér á landi í byrjun næsta mánaðar, hafa vakið athygli erlendra fjölmiðla. Þar bera hæst ummæli borgarstjóra Reykjavíkur, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, sem hefur lýst því yfir að hann harmi fyrirhugaðan fund klámframleiðenda í borginni.

Málið rataði inn á Alþingi í gær og í dag var það tekið fyrir á borgarstjórnarfundi Reykjavíkur. Á fundinum var það harmað að samkoman ætti sér stað í Reykjavík og send var einróma ályktun um að það væri í óþökk borgaryfirvalda. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri græns framboðs, lýsti yfir áhyggjum sínum af lögmæti atburðarins og hvernig ímynd Íslands hefur verið markaðssett erlendis og sérstaklega íslenskar konur, sem lýsi sér í vali staðarhalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×