Innlent

Breikkun Suðurlandsvegar fjármögnuð beint úr ríkissjóði?

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir mjög vel koma til greina að fjármagna breikkun Suðurlandsvegar beint með framlögum úr ríkissjóði. Hann segir að skuggagjaldaaðferð verði því aðeins notuð að hún reynist ríkissjóði hagstæð.

Samgönguráðherra hefur boðað sérstaka fjármögnun vegna breikkunar þjóðveganna út frá Reykjavík og hefur verið rætt um svokölluð skuggagjöld. Forveri Sturlu í embætti, Halldór Blöndal, segir ótækt að nota þá aðferð. Ríkið þurfi ekki á neinum millilið að halda til að komast inn á lánsfjármarkað.

Sturla segir skuggagjöld ekki líklegustu aðferðina og segir mjög vel koma til greina vegna sterkrar stöðu ríkissjóðs að fjármagna verkið beint úr ríkissjóði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×