Innlent

Mistekist að koma á samkeppni á raforkumarkaði

Það er verið að búa til einn samansúrraðan einokunarrisa, sagði formaður vinstri grænna í þingræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að leggja Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða undir Landsvirkjun. Fjármálaráðherra segir ljóst að markaðsvæðing raforkukerfisins hafi ekki tekist sem skyldi og mistekist hafi að koma á samkeppni.

Ríkisstjórnin vill gera Orkubú Vestfjarða og Rafmagnsveitur ríkisins að dótturfélögum Landsvirkjunar, bæði til að ná fram hagræðingu og til að styrkja eiginfjárstöðu Landsvirkjunar. Steingrímur J. Sigfússon spurði hvort þetta væri brandari og spurði hvort ríkisstjórninni væri alvara með því að fá þetta afgreitt á síðustu dögum þingsins. Jú, mönnum er alvara, svaraði fjármálaráðherra.Samkeppniseftirlitið telur að með breytingunni kunni Landsvirkjun að komast í markaðsráðandi stöðu í smásölu raforku til almennings. Því hyggst ráðherra mæta með því að kveða á um að skilið verði á milli framleiðslu og sölu raforku innan Landsvirkjunar, en jafnframt viðurkenndi hann að markmið Evrópusambandsins um markaðsvæðingu raforkukerfisins, sem Íslendingar fóru eftir, hefðu mistekist. Evrópusambandið reyni nú að greina hversvegna samkeppni náist ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×