Innlent

Tréverkshúsið á Bíldudal illa farið eftir bruna

Frá Slökkvistarfi á Bíldudal.
Frá Slökkvistarfi á Bíldudal. MYND/Bíldudalur.is/Páll Ágústsson.

Miklar skemmdir urðu á Tréverkshúsinu á Bíldudal í dag þegar eldur kviknaði í húsinu. Eftir því lögreglan á Ísafirði segir var tilkynnt um eldinn um hádegisbil og var allt tiltækt lið frá Brunvörnum Vesturbyggðar og Tálknafjarðar kallað til að ráða niðurlögum eldsins. Það gekk hins vegar erfiðlega þar sem hann hafði breiðst út og lauk slökkvistarfi ekki fyrr en á fjórða tímanum í dag.

Eldsupptök eru ókunn en lögregla segir að þau verði rannsökuð á næstunni. Engin starfsemi hefur verið í Tréverkshúsinu frá því um jól en þar áður var þar trésmíðaverkstæði. Eins og fyrr segir er húsið mikið skemmt en hugsanlegt er að það sé alveg ónýtt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×