Innlent

Harma komu klámframleiðenda til landsins

Félag kvenna af erlendum uppruna á Íslandi harma það að framleiðendur kláms skuli hafa valið Ísland sem samkomustað og ætli sér að nota dvöl sína hér til að styrkja viðskiptatengsl og tækifæri. Í yfirlýsingu til fjölmiðla fordæmir félagið komu hópsins til landsins og hvetur stjórnvöld til þess að fylgjast grannt með ferðum hans og athæfi á meðan á heimsókninni stendur. Segir félagið enn fremur að talskona hópsins hafi greint frá því í fjölmiðlum að ætlunin sé að búa til myndefni hér á landi og myndir frá síðustu samkomu hópsins sýni að þar sé um klámefni að ræða. Slíkt athæfi gangi gegn íslenskum lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×