Síminn og Landsvirkjun fallast á háa fjársekt fyrir ólögmætt samráð 19. febrúar 2007 18:38
Síminn og Landsvirkjun hafa viðurkennt að hafa haft með sér ólögmætt samráð vegna kaupa Símans á fjarskiptafyrirtæki og ljósleiðarastrengjum af Landsvirkjun og fallist á að greiða samtals áttatíu milljóna króna sekt í ríkissjóð. Þetta er hæsta sekt sem samið hefur verið um hérlendis vegna brota á samkeppnislögum.Síminn féllst á að greiða 55 milljóna króna sekt og Landsvirkjun 25 milljóna króna sekt. Þetta er þriðja hæst sekt í sögu samkeppnisbrota hérlendis en sú hæsta sem fyrirtæki hafa samið um, að sögn Guðmundar Sigurðssonar, aðstoðarforstjóra Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt fréttatilkynningu þess hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn eftir að greint var frá því að Síminn hefði fyrir þremur árum keypt fjórðungshlut í Fjarska ehf., dótturfélagi Landsvirkjunar, ásamt því að kaupa sex af tólf ljósleiðarastrengjum milli Hrauneyjafossvirkjunar og Akureyrar. Gögn málsins sýna að forsenda Símans fyrir samstarfi og verkaskiptingu á sviði fjarskipta við dótturfélag Landsvirkjunar hafi verið sú að Fjarski ásamt Landsvirkjun drægju sig út af almennum fjarskiptamarkaði og kæmu ekki til með að keppa við Símann á þeim markaði. Samkeppniseftirlitið segir einnig ljóst að með ofangreindum samningum hafi fyrirtækin skipt með sér heildaflutningsgetu ljósleiðarans milli Hrauneyjarfossvirkjunar og Akureyrar. Þá geti samningarnir veitt Símanum aðgang að viðkvæmum viðskiptalegum upplýsingum frá Fjarska. Eru samningarnir því samkeppnishamlandi og fela í sér ólögmæta markaðsskiptingu, að því er fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um varðandi samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Sjá meira