Innlent

Hugsanleg samvinna nýtingu jarðvarma í Djíbútí

Möguleiki á samvinnu íslenskra aðila og aðila frá Djíbútí við að nýta jarðvarma til orkuframleiðslu var ræddur á fundi utanríkisráðherra landanna í dag.

Utanríkisráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Mahmous Ali Youssouf ræddu einnig stöðu kvenna og barna í Djíbútí og aðgerðir ríkisstjórnar landsins til að útrýma fátækt.

Þá var ástand mála í Sómalíu, Erítreu og mannréttindamál rædd á fundinum auk framboðs Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×