Innlent

Lögregla og björgunarsveitir endurnýja samstarfssamning

Þorvaldur Hallsson, Haraldur Johannessen, Stefán Eiríksson og Þórhallur Ólafsson undirrita samninginn.
Þorvaldur Hallsson, Haraldur Johannessen, Stefán Eiríksson og Þórhallur Ólafsson undirrita samninginn. MYND/Lögregluvefurinn/Júlíus Sigurjónsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni fastmótar samningurinn áralangt samstarf lögreglu og björgunarsveita við leit og björgun að týndu fólki og viðbrögð við slysum, en í honum er jafnframt tekið á verkaskiptingu milli aðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×