OR semur um jarðhitarannsóknir í Djíbútí 19. febrúar 2007 16:29
Orkuveita Reykjavíkur mun starfa að þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðöslu í Djúbúti ásamt yfirvöldum þar samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag. Það voru Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Mahmoud Ali Youssouf, utanríkisráðherra Djíbútís, auk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur, sem skrifuðu undir samninginn að viðstöddum forsetum Íslands og Djíbútís. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni að við sama tækifæri hafi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ali Ismail Yabeh, borgarstjóri Djíbútís, höfuðborgar landsins, handsalað samkomulag um samstarf borganna. Samningur Orkuveitunnar og ríkisstjórnar Djíbútís felur í sér einkarétt Orkuveitunnar til rannsókna á jarðhita á tilteknum landsvæðum. Hann gildir til eins árs til að byrja með en verði niðurstöður rannsókna jákvæðar er gert ráð fyrir að Orkuveitunni verði veittur nýtingarréttur í samræmi við lög landsins. Þá er þess getið að Djíbútí byggi nú 85 prósent orkunotkunar sinnar á innfluttu jarðefnaeldsneyti. Vonast stjórnvöld þar í landi til að virkjun jarðvarma verði til þess að bæta lífskjör í landinu.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira