Innlent

Síminn og Landsvirkjun viðurkenna samráð og borga sektir

MYND/Páll Bergmann

Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., sem er dótturfélag Landsvirkjunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar.

Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að í sáttinni felist að aðilar málsins viðurkenna að hafa farið gegn 10. grein samkeppnislaga og ógildi þá samninga sem voru grundvöllur brotanna. Þá fellst Síminn á að greiða 55 milljónir í stjórnvaldssekt og Landsvirkjun 25 milljónir.

Í tilkynningunni segir enn fremur að forsaga málsins sé sú að í febrúar 2005 keypti Síminn fjórðungshlut í Fjarska, sem starfar m.a. á fjarskiptamarkaði, ásamt því að kaupa af Fjarska sex ljósleiðarastrengi af 12 á milli Hrauneyjafossstöðvar og Akureyrar.

Eftir að greint var frá þessu samstarfi í fréttum hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn sem leiddi til þess að aðilum var sent andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins. Þar kom fram það frummat eftirlitsins að markmiðið með samningum félaganna hefði verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta og með því hefði verið brotið 10. grein samkeppnislaga.

Báðir aðilar leituðu í kjölfar þess eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið sem leiddi til ofangreindrar niðurstöðu. Litið var til þess að Síminn var leiðandi aðili í samráðinu sem skýrir mismun á sektargreiðslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×