Innlent

Sat sinn fyrsta fund í þingflokknum í dag

Kristinn H.Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins.
Kristinn H.Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. MYND/Gunnar

Forseti Alþingis las við upphaf þingfundar nú klukkan 15:00 tilkynningu um inngöngu Kristins H. Gunnarssonar í þingflokk Frjálslynda flokksins. Kristinn hefur skráð sig sem félaga í Frjálslynda flokknum og sat hann í dag sinn fyrsta formlega fund með þingflokknum.

Ekki liggur fyrir hvar Kristinn mun bjóða sig fram, en Frjálslyndir hafa ekki gengið frá framboðslistum sínum að fullu fyrir næstu kosningar. Haft er eftir Kristni á fréttavefnum BB.is að þessi mál hafa verið rædd og tilkynnt verði um niðstöður á allra næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×