Innlent

Dæmd fyrir vörslu á hálfu kílói af amfetamíni

MYND/Valgarður

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir að hafa haft í fórum sínum yfir hálft kíló af amfetamíni og um fimm grömm af hassi. Konan játaði brot sitt en bar fyrir dómi að hún hefði einungis haft amfetamínið í sinni vörslu í innan við sólarhring. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að konan hafði ekki hlotið dóm áður, að hún hefði játað brot sitt skýlaust og að hún stundaði vinnu. Jafnframt var horft til þess að um mikið magn amfetamíns var að ræða. Auk þess að sakfella konuna úrskurðaði dómurinn að fíkniefni skyldu gerð upptæk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×