Innlent

Fjölmenni á Þjóðahátíð Austurlands

Austfirðingur héldu í gær sína árlegu Þjóðahátíð, í þetta sinn í Félagsheimilinu Skrúði Fáskrúðsfirði. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin eyrsta en þar kynna erlendir Austfirðingar menningu heimalands síns.

Markmið hátíðarinnar er að styrkja samskipti og samgang, skilning og vináttu milli allra íbúa Austurlands og tók ungviðið virkan þátt í því eins og þessi mynd ber með sér. Meðal gesta á hátíðinni voru ráðherrar utanríkismála og félagsmála ásamt Sæunni Stefánsdóttur, formanni innflytjendaráðs. Alls sýndu erlendir listamenn frá 13 löndum verk sín á hátíðinni, þar á meðal málverk, ljósmyndir, leirlist og glerlist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×