Innlent

Gengið frá kæru vegna rasks í Heiðmörk í kvöld

Skógræktarfélag Reykjavíkur gengur formlega frá kæru á hendur Kópavogsbæ vegna jarðrasks í Heiðmörk, á aukastjórnarfundi félagsins í kvöld. Verktakafélagið Klæðning verður líka kært en það hefur annast framkvæmdir fyrir bæinn án framkvæmdaleyfis og valdið talsverðu jarðraski og gróðurskemmdum. Framkvæmdirnar eru vegna lagningar vatnslagnar úr vatnsbólum Kópavogs til bæjarins. Þær hafa þegar verið stöðvaðar tímabundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×