Innlent

Sveitarfélögin fá ekkert af fjármagnstekjum og einkahlutafélögum

Fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætla að koma fram með hugmyndir um tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok næsta mánaðar.(2) Í dag fá sveitarfélögin engar tekjur af einkahlutafélögum og einstaklingum sem eingöngu hafa fjármagnstekjur.

Í dag var haldinn samráðsfundur fulltrúa í Sambandi íslenskra sveitarfélaga með fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra. Þar var m.a. rætt um færslu verkefna um málefni aldraðra og málefni fatlaðra til sveitarfélaganna og ákveðið að setja vinnuhópa í þau mál. Hins vegar ákvað fundurinn að ganga hraðar til verks varðandi skiptingu tekna ríkis og sveitarfélaga. En sveitarfélögin fá engar skatttekjur af vaxandi fjölda einstaklinga sem eingöngu hafa fjármagnstekjur og ekki heldur af miklum fjölda einkahlutafélaga.

"Við teljum okkur hafa sýnt fram á að sveitarfélögin þurfa á því að halda," segir Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í rauninni hafi útgjöld sveitarfélaga vaxið meira en útgjöld ríkisins á undanförnum árum sem ekki sé undarlegt því nærþjónustan sé að færast æ meir til sveitarfélaganna.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fer fram hinn 23 mars næst komandi.

"Og það var samþykkt á þessum samráðsfundi að formaður sambandsins, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra skipi í raun starfshóp sem á að vinna hratt og setji sér það markmið að vera með einhverja áfanga í því máli, tekjuskiptingarmálinu, fyrir landsþingið," segir Halldór.

Hann segir að á sínum tíma hafi verið talað um að færa þyrfti um þrjá milljarða af tekjum ríkissjóðs yfir til sveitarfélaganna. Hann sagði sveitarstjórnarmenn bíða eftir tillögum í þessum efnum og því mikilvægt að einhverjar tillögur kæmu fyrir landsþingið í lok næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×