Landsbanki og Landsvirkjun í alþjóðleg orkuviðskipti 16. febrúar 2007 18:37
Landsbankinn og Landsvirkjun sameinuðust um stofnun alþjóðlegs fjárfestingafélags sem ætlað er að fjárfesta í endurnýjanlegri orkuvinnslu með áherslu á vatnsafl. Hvort fyrirtæki um sig leggur tvo milljarða til hins nýja félags. Aðeins er um vika síðan fulltrúar Landsbankans báru hugmynd um stofnun fyrirtækisins upp við Landsvirkjun, en bankinn hefur unnið að þessum málum frá því í fyrra haust. Það voru því hafðar hraðar hendur þar til samningur um stofnun fyrirtækisins var undirritaður af stjórnarformönnum bankans og Landsvirkjunar í dag. Hið nýja fyrirtæki heitir HydroKraft, en auk tveggja milljarða frá hvorum aðila, tryggir Landsbankinn sölu á hlutafél upp á milljarð til viðbótar. Þarna er meiningin að nýta þekkingu Íslendinga á gerð virkjana annars vegar og á alþjóðlegum fjárfestingum hins vegar, með svipuðum hætti og Geysir Green Energy, sem Íslandsbanki og FL Gropup stofnuðu fyrir nokkrum vikum. Stjórnarformaður Landsvikrjunar segir þetta í takt við það sem ætlast er til af fyrirtækinu. "Og kannski opnar þetta leiðir til þess að við getum tekið þátt í útrás á erlendri starfsemi án þess að verið sé að einkavæða fyrirtækið," segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson stjórnarformaður Landsvirkjunar. "Mér finnst að þetta sé það sem flestir ættu að geta sameinast um." Þú nefnir einmitt þetta viðkvæma umræðuefni, einavæðingu Landsvirkjunar, en gæti þetta ekki alveg eins verið undanfari þess? "Nei, þetta tengist því að mínu mati ekki neitt. Þvert á móti þetta gefur okkur tækifæri til þess að taka þatt í þessari starfsemi með öðrum án þess að búið sé að stíga það skref,"segir Jóhannes. Fyrirtækið mun sérstaklega horfa til Austur Evrópu. "Í þessu tilfelli er Austur Evrópa mikið til skoðunar vegna þess að þar eru mikil tækifæri fólgin í því að finna virkjanir sem hægt er síðan að betrumbæta og ná meiri nýtingu úr, Segir Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans. Það séu einmitt stærstu tækifærin sem bankinn og Landsvirkjun sjái á þessum vettvangi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira