Innlent

Neytendasamtökin skoða næstu skref

Neytendasamtökin notuðu mál Sigurðar sem prófmál.
Neytendasamtökin notuðu mál Sigurðar sem prófmál. MYND/Ljósmyndadeild

Neytendasamtökin telja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurðar Hreinssonar í dag afar mikilvæga. Samtökin tóku að sér mál Sigurðar og var það hugsað sem prófmál fyrir fleiri neytendur sem þangað höfðu leitað.

Á annað hundrað neytendur leituðu á sínum tíma með gögn til Neytendasamtakanna en í þeim komu fram viðskipti við olíufélögin á meðan á verðsamráðinu stóðu. Neytendasamtökin ætla nú að fara yfir framhald málsins með Steinari Guðgeirssyni lögmanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×