Innlent

Tilfærslur hjá lögreglunni

Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn flyst frá embætti ríkislögreglustjóra til starfa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. mars næstkomandi. Þar mun hann sinna innri endurskoðun embættisins.

Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögregluþjónn við embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu flyst til embættis ríkislögreglustjóra á sama tíma. Ásgeir mun fara með daglega stjórn greiningardeildar ríkislögreglustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×