Innlent

Sumarbústaður fuðraði upp

Slökkviliðið er að ljúka slökkvistarfi við sumarbústað við Úlfarsfell sem brann til kaldra kola. Vegfarandi tilkynnti um eld í bústaðnum um eitt leytið og var bústaðurinn alelda þegar slökkvilið kom á svæðið.

Ljóst var strax að ekki væri hægt að bjarga bústaðnum og reyndu slökkviliðsmenn því að verja gróður og annað í kring. Um fjörtíu fermetra bústað var að ræða, hann var nokkuð gamall en enn í notkun. Enginn var inni í honum þegar eldsins varð vart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×