Innlent

Stígamót vilja að ráðamenn komi í veg fyrir klámþing

Samtökin Stígamót skora á marga af helstu ráðamönnum landsins að koma í veg fyrir að klámþing verði haldið á Íslandi.

Kaupstefnan ber heitið Snow Gathering og ætla tugir framleiðenda klámefnis að taka þátt í henni. Þeir ætla sumir að nýta ferðina til að taka upp klámmyndir meðan þeir eru hér á landi. Kaupstefnan verður haldin dagana 7. -11. mars.

Áskorun Stígamóta var send til ríkisstjórnar Íslands, þingheims, borgarstjórnar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins og ríkislögreglustjóra.

Hér má sjá heimasíðu Snow Gathering




Fleiri fréttir

Sjá meira


×