Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngum milli Eyja og lands 16. febrúar 2007 12:15
Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngumálum milli Vestamannaeyja og lands eins og staðan er nú, segir Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Hann segir að sérstaka samþykkt þurfi hjá Alþingi til að ráðast í rannsóknir á hagkvæmni jarðganga milli lands og Eyja. Árni Johnsen lýsti því yfir í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að fáránlegt væri að ráðast í gerð ferjuhafnar á Bakkafjöru án þess að kanna kostnað við jarðgangagerð til Vestmannaeyja. Gerð ferjuhafnarinnar á að hefjast á næsta ári og gert er ráð fyrir því að framkvæmdirnar og ný ferja kosti ríkið um fimm milljarða króna. Árni hefur barist hvað mest fyrir jarðgöngum til Eyja og fengið til liðs við sig fjársterka Eyjamenn. Þegar Fréttastofa leitaði viðbragða hjá flokksbróður Árna, Sturlu Böðvarssyni samgöngumálaráðherra, áréttaði ráðherra að ríkisstjórnin vilji fylgja þeirri línu að fullkanna hvort hægt sé að byggja höfnina við Bakkafjöru og minnir á að ríkisstjórnin hafi samþykkt tillögu hans um að leggja til fé í rannsóknir á hafnarstæðinu við Bakkafjöru. Alþingi hafi samþykkt þessa tillögu og að 200 milljónir verði veittar í undirbúnings- og rannsóknarvinnu. Til að breyta ferlinu þurfi sérstaka samþykkt hjá Alþingi. Sturla minnir á að tillögur sínar um að leggja þunga á Bakkafjöruhöfn sem lausn í samgöngum milli lands og Eyja byggi hann á skýrslu sem unninn var á síðasta ári af nefnd undir stjórn Páls Sigurjónssonar, verkfræðings. Nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé álitlegt að byggja jarðgöng til Vestmannaeyja. Það sé ekki einu sinni næsti kostur á eftir hafnargerð í Bakkafjöru.
Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Fleiri fréttir Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Sjá meira