Innlent

Nýr formaður KSÍ hefur ekki enn svarað Mannréttindanefnd

Knattspyrnusamband Íslands hefur enn ekki svarað erindi Mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar um stöðu kynjanna innan sambandsins. Erindið var upphaflega sent í nóvember og aftur nú í byrjun febrúar. Nýkjörinn formaður segir fráfarandi formann ekki hafa komist í málið vegna dvalar sinnar erlendis og segist ekki vilja tjá sig um málið nú.

Staða kvenna innan KSÍ hefur verið í sviðljósinu frá því fyrir áramót þegar upp kom að dagpeningagreiðslur til landsliðkvenna í knattspyrnu voru mun lægri en til landsliðskarla.

Hlutfall kvenna í stjórnum og nefndum innan KSÍ hefur líka vakið athygli en 14 karlar sitja í stjórn sambandsins og 2 konur. 24 nefndir eru innan vébanda KSÍ. Þar sitja 19 konur og 136 karlar.

Þess má geta að rúmlega 5.500 stúlkur og konur er leika og æfa knattspyrnu á Íslandi en tæplega þrettán þúsund drengir. Marsibil Sæmundsdóttir segir erindi Mannréttindanefndar til KSÍ snúast aðallega um launaumhverfi innan sambandsins og þrátt fyrir að dagpeningagreiðslur til kvenna og karla hafi verið leiðréttar af hálfu sambandsins, vilji nefndin ennþá hitta formann KSÍ.

Nýkjörinn formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, neitaði að tjá sig um málið í dag.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×