380 milljarðar til samgöngumála á næstu 11 árum 12. febrúar 2007 16:41 MYND/E.Ól
Reiknað er með að rúmlega 380 milljörðum króna verði varið til samgöngumála á árabilinu 2007 til 2018 samkvæmt samgönguáætlun sem kynnt var í dag. Stærstur hluti þess rennur til vegamála, eða 85 prósent, en annað til flug- og siglingamála. Eftir því sem fram kemur í samantekt á áætluninni frá samgönguráðuneytinu er fjármagninu dreift á þrjú fjögurra ára tímabil en það fyrsta nær frá árinu í ár til 2010. Þar er samtals gert ráð fyrir 104 milljörðum til vegamála. Meðal verkefna sem ráðist verður í á fyrsta tímabilinu samkvæmt samgönguráætlun er bygging samgöngumiðstöðvar í Reykjavík og lenging flugbrauta á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Þá á að verja 42 milljörðum til vegaframkvæmda á landsbyggðinni og um 37 milljörðum til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður tæpum 38 milljörðum ráðstafað til jarðganga. Þá er gert ráð fyrir að afla kringum 45 milljarða króna með sérstakri fjármögnun og ráðstafa til ákveðinna verkefna, svo sem breikkun Hringvegarins út frá Reykjavík og framkvæmdum við Sundabraut. Samgönguáætlunin gerir ráð fyrir að ráðast megi í nokkur viðamikil verkefni og þau fjármögnuð með sérstakri fjáröflun eins og einkaframkvæmd en þar má nefna samgöngumiðstöð í Reykjavík, átak í breikkun og endurbótum á aðalvegum út frá Reykjavík til austurs og norðurs og bygging og rekstur Bakkafjöruferju. Í samgönguáætlun er jafnframt gert ráð fyrir að samgöngur verði í auknum mæli sjálfbærar með nýtingu umhverfisvænna orkugjafa. Áætlað er að notkun vistvæns eldsneytis verði um 20 prósent af heildarnotkun við lok áætlunarinnar. Þá fylgir umhverfismat nú í fyrsta sinn samgönguáætlun en þar er tekið mið af umhverfissjónarmiðum við gerð tillögu að samgönguáætlun, að áætlunin sé í samræmi við aðrar áætlanir og lög og alþjóðlega samninga.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira