Innlent

Yfirstjórn RÚV við talningu

Enn er á huldu hversu margir starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa ákveðið hvort þeir muni hætta störum þegar stofnunin breytist í opinbert hlutafélag. Frestur starfsmanna til að gefa svar rann út á föstudag, en að sögn Guðbjargar Jónsdóttur starfsmannastjóra á eftir að taka það saman hversu margir munu nýta sér þann rétt að hætta og þiggja biðlaun þegar hlutafélagið tekur formlega til starfa 1. apríl. Þeir starfsmenn stofnunarinnar sem hófu störf fyrir 1. júlí árið 1996 eiga rétt á biðlaunum en þeir munu vera 116 talsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa einhverjir starfsmenn nú þegar nýtt sér réttinn og munu hætta við breytingarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×