Innlent

Vill að einhver axli ábyrgð

Það er til skammar fyrir íslensk stjórnmál hvernig allir hlaupa frá Byrgismálinu. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í Silfri Egils í dag. Forsætisráðherra sagði mikinn þrýsting hafa verið á stjórnvöld að láta fé í Byrgið og stjórnarandstaðan hefði verið framarlega í flokki.

Landlæknisembættinu barst árið 2002 bréf frá Pétri Haukssyni geðlækni þar sem hann varaði við því að verið væri að misnota stúlkur allt niður í fimmtán ára í Byrginu. Hann sagði nokkur börn hafa orðið til vegna samskipta starfsmanna og stúlknanna. Ekki var hins vegar brugðist við bréfinu.

Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var meðal gesta í þætti Egils Helgasonar, Silfri Egils, í dag. Þar sagði hann það versta við málið vera hvernig enginn vilji taka ábyrgð. Össur sagði hundslegt hvernig þeir ráðherrar sem bera ábyrgð í málinu hafa komið fram.

Geir H. Haarde forsætisráðherra var einnig gestur Egils í dag. Hann sagði málið í farvegi, lögreglan væri með hluta af því til rannsóknar og félagsmálaráðuneytið væri að fara yfir það. Geir sagði mikinn þrýsting hafa verið á stjórnvöld að láta fé til Byrgisins og þar hefði stjórnarandstaðan verið framalega í flokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×