Innlent

Fjölmenni á baráttufundi í Árnesi

Urriðafoss
Urriðafoss MYND/Ljósmyndadeild

Félagsheimilið í Árnesi er þétt setið en þar stendur nú yfir baráttufundur andstæðinga þriggja virkjana sem áformaðar eru í neðri hluta Þjórsár. Talið er að um fjögur hundruð manns séu á fundinum en meðal fundargesta eru þingmenn, frambjóðendur í kjördæminu og úr öðrum landshlutum, heimafólk og höfuðborgarbúar. Ræður hafa verið fluttar og sungið auk þess sem sýndar hafa verið myndir af svæðinu.

Í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 klukkan hálf sjö verður sýnt frá fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×