Innlent

Ósáttir við lögreglumann og sprengdu upp flugeld

MYND/Róbert

Lögreglan telur ekki tilviljun að flugeldur hafi verið sprengdur upp við heimili lögregluþjóns á Skagaströnd í nótt. Lítið tjón var af spengingunni sem var við dyr hússins. Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, segir lögregluþjóninn hafa haft afskipti af vélhjólamönnum á svæðinu og telur lögreglan sprenginguna eins konar svar við því. Lögreglumaðurinn er sá eini sem er á Skagaströnd en lögreglan rannsakar málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×