Gerð Helgafellsbrautar hitamál 11. febrúar 2007 13:00
Gerð Helgafellsbrautar er orðið mikið hitamál hjá íbúum í Mosfellsbæ og sást það glöggt á opnum fundi Varmársamtakanna í gær. Samtökin telja marga þætti ekki hafa verið skoðaða nógu vel og vilja að hætt verði við framkvæmdirnar. Bærinn ætlar að halda opinn fund um málið í næstu viku. Um eitt hundrað manns komu saman á fundi Varmársamtakanna í Álfafosskvosinni í gær. Á fundinum héldu Jón Baldvin Hannibalsson og Sigrún Pálsdóttir erindi þar sem farið var yfir þær tillögur sem samtökin hafa komið á framfæri við bæjarstjórn Mosfellsbæjar vegna málsins. Samtökin telja að allir þættir framkvæmdanna hafi ekki verið skoðaðir nægjanlega og hafa meðal annars fundað með umhverfisráðherra vegna málsins. Hjá úrskurðarnefnd skipulags og byggingarmála liggur fyrir kæra þar sem Varmársamtökin óska eftir því að framkvæmdirnar verði stöðvaðar. Ekki er ljóst hvenær úrskurðurinn liggur fyrir en vonast samtökin til að það verði í næstu viku. Á fundinum kom fram hörð gagnrýni á aðgerðarleysi Vinstri-grænna í umhverfismálum í bænum. Fulltrúi flokksins í bæjarstjórn sat ekki fundinn sökum skamms fyrirvara og tók Ögmundur Jónasson, þingmaður flokksins, við hans sæti í pallborðsumræðum sem fram fóru. Mosfellsbær sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem sagt var að bæjarfulltrúar meirihlutans hefðu ekki séð sér fært að koma fundinn sökum lítils fyrirvara. Í yfirlýsingunni var jafnframt boðað til opins kynningarfundar um hönnun og útfærslu tengivegar inn í Helgafellshverfi. Fundurinn verður þriðjudaginn 13. febrúar í Listasal Mosfellsbæjar.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira