Innlent

Á 106 kílómetra hraða þar sem 50 kílómetra hraði er leyfður

Ökumaður var tekinn í gærkvöldi á 106 kílómetra hraða á Drottningarbraut við Kaupvangsstræti á Akureyri en þar er hámarkshraði 50 kílómetrar á klukkustund. Mikil hálka var á götum bæjarins og þegar ökumaðurinn var inntur eftir skýringu á háttalagi sínu, sagðist hann hafa ætlað að ná yfir gatnamótin á grænu ljósi.

Hann var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni og má reikna með 75 þúsund króna sekt og að verða sviptur ökuleyfinu í mánuð. Lögreglan á Akureyri vekur athygli á því að síðastliðna viku hafa 28 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi sýslumannsins á Akureyri. Margir þeirra hafa verið stöðvaðir í grennd við grunnskóla Akureyrar, þar sem leyfður hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×