Tímaspursmál hvenær ljósabekkir verða bannaðir 10. febrúar 2007 19:45
Tímaspursmál er talið hvenær öll notkun ljósabekkja á landinu verður bönnuð, segir læknir. Hið opinbera vinnur nú markvisst að því að útrýma ljósabekkjum í húsnæði sveitarfélaga. Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrarbæjar var tekið fyrir erindi frá Braga Sigurðssyni, formanni læknaráðs Heilsugæslunnar á Akureyri þar sem skorað var á íþróttráð Akureyrar að fjarlægja alla ljósabekki úr þeim mannvirkjum, sem ráðið hefur tilsjón með. Íþróttaráð varð við þessu og verður rekstri ljósabekkjanna hætt "við fyrsta tækifæri" eins og segir í bókun ráðsins.Notkun ljósabekkja er hættuleg húðinni og getur valdið krabbameini, segir Bragi, og vitnar í rannsóknir því til stuðnings. Hann telur aðspurður aðeins tímaspursmál hvenær öll notkun á ljósabekkjum verður bönnuð. Það sé þangað til frumskylda hins opinbera að ganga á undan með góðu fordæmi og banna rekstur ljósabekkja á stöðum sem ætlað er að auka heilbrigði landsmanna eins og í íþróttahúsum og sundlaugum. Braga er ekki kunnugt um að önnur sveitarfélög úti á landi hafi tekið þetta skref en víða úti á landi hafa verið starfræktir ljósabekkir á vegum sveitarfélaga svo sem í sundlaugum. Reykjavíkurborg hefur hins vegar látið fjarlægja alla ljósabekki úr húsnæði borgarinnar.Gísli Kristinn Lórenzson, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar, segir að afnám ljósabekkjanna þýði tekjuskerðingu og kalli á nýja rekstraráætlun. Bekkirnir eru í eigu einkaaðila en sundlaugin hefur fengið hlutfallstekjur af innkomu. Það kostar 500-600 krónur að láta geisla sig í bekkjunum og samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa tekjur ljósabaðanna numið milljónum króna á ári.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira