Innlent

Verið að draga vélarvana bát til Skagastrandar

Björgunarbáturinn Húnabjörg er á leiðinni til Skagastrandar með vélarvana bát. Báturinn, Afi Aggi EA-399, er frá Dalvík og óskuðu skipverjar eftir aðstoð á sjöunda tímanum í morgun en þá hafði vél bátsins bilað og sjór komist í vélarrúm. Tveir menn eru um borð og amar ekkert að þeim. Báturinn er væntanlegur til Skagastrandar síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×