Innlent

Sylvía Nótt ekki dauð úr öllum æðum

Frá blaðamannafundi fyrir hádegi.
Frá blaðamannafundi fyrir hádegi. MYND/Stöð 2

Það er útgáfufyrirtækið Reykjavík Records sem hefur ákveðið að veðja á ólíkindatólið Silvíu Nótt og ætlar að setja tugi milljóna í alþjóðlega markaðssetningu á nýjum geisladiski Silvíu sem hefur verið í vinnslu undanfarna mánuði. Þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar forsvarsmanna Reykjavík Records um að hér væri á ferðinni stærsti íslenski plötusamningurinn fékkst nákvæmt verðmæti samningarins ekki uppgefið.

Á blaðamannafundi þar sem samningurinn var undirritaður um borð í hvalaskoðunarskipinu Eldingu, var auðséð að Sylvía hefur engu gleymt og hélt fast við gamla takta. Aðspurð hvort hún væri búin að jafna sig á hrakförunum í Grikklandi í vor sagði hún að þátttaka sín í þeirri keppni hefði verið í gamni gerð og engin alvara á bak við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×