Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa 8. febrúar 2007 18:30
Gríðarlegur viðskiptahalli og óvissa í launamálum veldur því að vaxtalækkunarferli er ekki hafið af hálfu Seðlabankans, sem þó ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum um sinn. Frekari stóriðjuframkvæmdir, eins og stækkun álversins í Straumsvík, eru ekki inn í forsendum bankans þegar hann metur horfur á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Seðlabakinn tilkynnti í morgun að stýrivextir verði óbreyttir í 14,25 prósentum næstu tvo mánuðina eða svo, þar til í lok mars þegar bankinn tekur næst ákvörðun um vexti. Þótt verðbólga sé enn langt yfir markmiðum bankans, segja forráðamenn hans að verðbólga sé nú minni en áætlað var og verðbólguhorfur til skamms tíma séu góðar. Því kunni verðbólgumarkmiðum bankans að verða náð við núverandi vaxtastig innan 24ra mánaða. "Á hinn bóginn er enn mikið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Gríðarlegur viðskiptahalli felur í sér að stöðugleiki krónunnar er háður vilja alþjóðlegra fjárfesta og lánadrottna til að fjármagna hann," sagði Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans í morgun. Davið segir að reynslan sýni að jafnvel hóflegar breytingar í alþjóðlegum fjármálaskilyrðum geti haft veruleg áhrif á sveiflur á gengi gjaldmiðla. Ef það leiddi til gengisfalls krónunar myndi verðbólga aukast á ný, einkum ef það gerðist á sama tíma og mikil spenna ríkti á vinnumarkaði. "Enn sjást þess fá merki að farið sé að draga úr henni og laun hafa hækkað langt umfram framleiðni undanfarin ár," sagði seðlabankastjóri. Frekari verðlagsáhrif þessa gætu átt eftir að koma fram. Versni verðbólguhorfur á ný muni bankinn bregðast við." Það þýðir að þá mun bankinn hækka stýrivexti á ný. Þá er forsenda lækkunar vaxta að útflutningur aukist og eftirspurn innanlands, eða neysla, minnki, þannig að verulega dragi úr gríðarlegum viðskiptahalla. Bankinn reiknar t.d. væntanlega lækkun virðisaukaskatts á matvæli ekki til lækkunar verðbólgu, enda feli hún í sér undirliggjandi verðbólguhvata. Það ríkir ákveðin þversögn í efnhagsmálum þjóðarinnar um þessar mundir. Annars vegar er nauðsynlegt að slá á þenslu en hins vegar er nauðsynlegt að auka útflutning til að vinna gegn gríðarlegum viðskiptahalla, útflutning á t.d. áli. Þannig er reiknað með að útflutningur á áli frá álverinu á Reyðarfirði minnki viðskiptahallan en Seðlabankinn reiknar aðeins með þeim stóriðjuframkvæmdum sem hafa verið ákveðnar í sínum spám um verðbólguþróun. "Stækkun álversins í Straumsvík liggur ekki fyrir. Þar á eftir að taka ýmsar ákvarðanir, eins og til að mynda atkvæðagreiðsla í því ágæta bæjarfélagi Hafnarfirði," sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira