Innlent

Skýrslutökur halda áfram vegna brottnáms stúlkna

Skýrslutökur halda áfram hjá lögreglunni á Húsavík í dag vegna máls sem kom upp í Laugaskóla aðfararnótt föstudags. Þá fóru nokkrir eldri nemar í hópi drengja við skólann inn á herbergi þriggja ungra stúlkna þar sem þær sváfu fáklæddar á heimavist, tóku þær nauðugar af vistinni og tróðu þeim í skottið á bíl.

Ekið var með þær í húsnæði skammt frá skólanum þar sem þær voru niðurlægðar með ýmsum hætti. Drengirnir voru með þessu athæfi að svara hrekk þar sem stúlkurnar höfðu komið fyrir þorskhausum í herbergjum drengjanna.

Líklegt er að drengirnir verði kærðir hvort sem stúlkurnar gera það eða ekki, þar sem þær eru börn, allar undir 18 ára aldri. Lögreglan á Húsavík sagði nú í morgun að hún gæti ekki tjáð sig um málið en meðal annars hefur verið til rannsóknar hvort kynferðisbrot hafi átt sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×