Nemendur sendir heim í mótmælaskyni 29. janúar 2007 13:57 Grunnskólinn á Eyrarbakka.
Kennarar í barnaskólanum á Eyrarbakka sendu í morgun um áttatíu börn í efstu bekkjum skólans heim til sín um tíuleytið til þess að mótmæla því sem þeir kalla sleifarlag við framkvæmdir á skólalóðinni á Eyrarbakka. Um var að ræða alla nemendur í 6.-10. bekk en yngri börnin eru í skóla á Stokkseyri. Að sögn Kristins M. Bárðarsonar, varatrúnaðarmanns kennara og fulltrúa kennara í skólanefnd, eru kennarar orðnir þreyttir á því ástandi sem skólalóðin er í en þar var nýverið bætt við tveimur útistofum með tilheyrandi raski á skólalóðinni. Kristinn segir að framkvæmdum hafi átt að ljúka um áramót en þeim sé ekki enn lokið. Skólastjórinn hafi margbeðið um úrbætur en talað fyrir daufum eyrum hjá framkvæmda- og veitusviði Árborgar. Bæði nemendum og kennurum sé sýnd lítilsvirðing með þessu vinnubrögðum og að slysahætta hafi verið á skólalóðinni vegna þessa. Kristinn segir ákvörðunina um að senda börnin heim hafa verið mjög erfiða en að skólastjóra hafi verið tilkynnt um þetta í hádeginu á föstudaginn. Kristinn segir að bæjarstjóri Árborgar, Ragnheiður Hergeirsdóttir, hafi heimsótt skólann í síðustu viku og verið öll að vilja gerð. Starfsmenn séu þakklátir fyrir heimsókn bæjarstjóra en svo virðist sem einhver tregða sé annars staðar í kerfinu. Aðspurður hvort ætlunin sé að grípa aftur til aðgerða sem þessara segir Kristinn að framkvæmdaaðilum á vegum Árborgar verði gefið nú tækifæri til að sýna vilja í verki. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn framkvæmda- og áveitusviðs Árborgar og heldur ekki Ragnheiði Hergeirsdóttur, bæjarstjóra í Árborg.
Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira