Arsenal valtaði yfir Liverpool í sögulegum leik 9. janúar 2007 21:44 Julio Baptista hefur ekki verið í fyrrisögnunum síðan hann kom til Arsenal, en hann stimplaði nafn sitt varanlega í sögubækur á Englandi í kvöld með því að skora fjögur mörk í einum leik á Anfield NordicPhotos/GettyImages
Arsenal burstaði Liverpool 6-3 á Anfield í ótrúlegum knattspyrnuleik sem fer í sögubækurnar. Arsenal sló Liverpool út úr enska bikarnum um helgina og sló heimamenn út úr deildarbikarnum í kvöld. Julio Baptista skoraði fjögur mörk fyrir Arsenal og misnotaði þar að auki vítaspyrnu. Jeremie Aliadiere kom Arsenal yfir í leiknum en Robbie Fowler jafnaði með laglegri hælspyrnu. Baptista kom Arsenal svo 2-1 yfir með marki beint úr aukaspyrnu. Alexandre Song og Julio Baptista komu svo gestunum í 4-1 með tveimur mörkum í röð rétt áður en flautað var til hlés. Baptista misnotaði vítaspyrnu fyrir Arsenal á 56. mínútu þegar hann lét Jerzy Dudek verja frá sér, en hann skoraði samt fimmta mark liðsins á 60. mínútu. Eftir það hresstust heimamenn aðeins við mótlætið og þeir Sami Hyypia og Steven Gerrard minnkuðu muninn í 5-3, en hinn ótrúlegi Baptista kláraði svo leikinn með sjötta markinu á 84. mínútu í þessum ótrúlega knattspyrnuleik sem sýndur var beint á Sýn. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á Anfield í deildarbikarkeppninni og auk þess eitt stærsta tap liðsins á heimavelli í sögu félagsins. Liverpool fékk síðast á sig sex mörk á heimavelli árið 1930 þegar það tapaði 0-6 fyrir Sunderland. Auk þess að vera niðurlægt á heimavelli varð liðið fyrir áfalli þegar vængmaðurinn Mark Gonzalez var borinn meiddur af velli - og Luis Garcia fór sömu leið. Íslendingalið Reading tryggði sér áframhaldandi þáttöku í enska bikarnum í kvöld með 3-2 sigri á Burney, þar sem Ívar Ingimarsson var í liði Reading.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Körfubolti Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Fleiri fréttir Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Sjá meira