Hiddink á ekki von á að Englendingar vinni riðil sinn 10. september 2007 09:14 NordicPhotos/GettyImages
Hollendingurinn Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússa, segist ekki reikna með því að Englendingar nái upp úr riðli sínum í undankeppni EM. Hiddink mætir Englendingum á Wembley á miðvikudaginn og segist eiga von á því að þau þrjú lið sem eru í efstu sætunum í dag berjist um sigur í riðlinum. Breskir fjölmiðlar halda því fram að Hiddink sé enn súr út í enska knattspyrnusambandið fyrir að bjóða sér ekki starf landsliðsþjálfara þegar Sven-Göran Eriksson hætti, en Hiddink var þess í stað boðið að sækja um starfið. Það þótti umboðsmanni Hollendingsins vera vanvirðing við þjálfara með jafn gott orðspor í heimsknattspyrnunni. Lærisveinar Hiddink, Rússar, eru í öðru sæti E-riðilsins með 18 stig, Króatar eru á toppnum með 20 stig og Englendingar og Ísraelar hafa 17 stig í 3-4 sæti - þar sem Ísrael hefur leikið einum leik meira en hinar þjóðirnar. "Þetta er gríðarlega erfiður riðill og ég held að þessar þrjár efstu þjóðir muni berjast um sigurinn. Ég vildi óska þess að Englendingar næðu á EM af því það er alltaf best að hafa stórþjóðir eins og Englendinga með á stórmótum, en það er ekki hægt að horfa framhjá Króötum. Þeir eru með reynt lið og tapa ekki mörgum stigum," sagði Hiddink.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Fleiri fréttir Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks „Leikmenn skora mörk en liðið tekur sigurinn“ Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Uppgjör: FH - Þróttur R. | Ída Marín kom FH á toppinn með fimm mörkum Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Sjá meira