Greiðslubyrði heimilanna eykst 30. janúar 2007 18:30
Greiðslubyrði heimilanna í landinu hefur vaxið um tvöhundruð og fimmtíu þúsund krónur á ári, miðað við árið í fyrra. Formaður Samfylkingarinnar segir heimilin bera kostnaðinn af mistökum ríkisstjórnarinnar í hagstjórn. Bankarnir græði hinsvegar sem aldrei fyrr. Formaður Samfylkingarinnar hóf utandagskrárumræðu um efnahagsmál og sagði að það stefndi í að greiðslubyrði heimilanna hækkaði um tæplega tuttugu og tvo milljarða á þessu ári. Hún vitnaði í orð Seðlabankastjóra um að teflt hefði verið á tæpasta vað í efnahagsstjórninni. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði íslenskt efnahagslíf níðsterkt, þar kæmi til sveigjanleiki í efnahagslífinu og gríðarlega sterk staða ríkissjóðs og traust lífeyrissjóðakerfi. Framkvæmdir í virkjunarmálum hefðu þó reynt á efnahagslífið sem og sviptingar á húsnæðismarkaði. Birgir Ármannsson sagði athyglisvert að gagnrýni formanns Samfylkingarinnar sneri einkum að skattalækkunum, breytingum á húsnæðismarkaði og Kárahnjúkavirkjun. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði mestu máli skipta að fjölskyldurnar í landinu væru að borga tvöhundruð og fimmtíu þúsund krónum meira í afborganir og vexti en í fyrra, einungis vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Veður Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Innlent „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Erlent Fleiri fréttir Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Sjá meira