Innlent

Hönnun Þjórsárvirkjana boðin út

Landsvirkjun hefur hafið útboðsferli fyrir þrjár umdeildar virkjanir í neðri Þjórsá. Í gær kom í ljós að þrjú tilboð bárust í hönnun virkjananna.

Verkefnið sem nú hefur verið boðið út felst aðallega í því að hanna allar virkjanirnar þrjár fyrir útboð, lokahönnun þeirra, gerð útboðsgagna, gerð vinnuteikninga og aðstoð við Landsvirkjun á byggingartíma. Urriðafossvirkjun verður þeirra stærst, 125 megavött, Holtavirkjun verður 50 megavött og Hvammsvirkjun 80 megavött. Þrjár verkfræðisamsteypur, íslenskar og erlendar í bland, skiluðu inn tilboðum en frestur rann út í gær. Tilboð þeirra eru tvískipt, annars vegar tæknilegt, og hins vegar fjárhagslegt tilboð. Matsnefnd Landsvirkjunar mun fara yfir tæknilegu tilboðin á næstu vikum og gefa þeim einkunn. Í framhaldi af því verða fjárhagslegu tilboðin opnuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×