Innlent

RÚV verður áfram á auglýsingamarkaði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill RÚV á auglýsingamarkaði.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill RÚV á auglýsingamarkaði.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist ekki hafa fyrirætlanir um það að leggja fram lagafrumvarp um breytingar á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að hún teldi eðlilegra að ræða stöðu RÚV á auglýsingamarkaði frekar en að gera 300 milljóna króna samning RÚV og Björgólfs Guðmundssonar tortryggilegan.

„Það eru skiptar skoðanir á málinu. Sumir vilja hafa RÚV á auglýsingamarkaðnum. Til dæmis eru auglýsendur þeirrar skoðunar. Svo eru aðrir sem vilja fá RÚV út af markaðnum," segir Þorgerður.

„Ég tek undir með stjórnendum RÚV þegar þeir segja að þetta séu fjármunir sem renni beint til sjálfstæðra framleiðenda en ekki til RÚV," bætir Þorgerður við.

Hún gerir ekki athugasemdir við það að Björgólfur hafi fremur kosið að gera samning um framleiðslu dagskrárefnis fyrir RÚV fremur en að stofna sérstakan sjóð eða styrkja Kvikmyndasjóð Íslands. „Það er hans að ákveða hvernig hann ver sínu fjármagni," segir Þorgerður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×