Innlent

Mun fleiri lesbíur skrá sig í sambúð en hommar

Frá Hinsegin dögum.
Frá Hinsegin dögum. MYND/NFS

Ríflega 50 samkynhneigð pör létu skrá sig í í sambúð hjá Þjóðskrá á þeim rúmlega sex mánuðum á síðasta ári sem það var mögulegt eftir gildistöku nýrra laga. Fram kemur á vef Hagstofunnar að 37 paranna hafi verið konur en 15 karlapör skráðu sig í sambúð. Frá því að lög um staðfesta samvist tóku gildi árið 1996 hafa 155 pör staðfest samvist og eru pör karla og kvenna nær jafn mörg.

Tölur Hagstofunnar leiða enn fremur í ljós að nærri 1700 pör gengu í hjónaband í fyrra og þá voru nærri 500 lögskilnaðir. Enn fremur voru um 1750 pör skráð í óvígða sambúð og rúmlega 570 pör skráðu sig úr óvígðri sambúð.

Giftingartíðni í fyrra reyndist 5,5 á hverja þúsund íbúa hefur hækkað nokkuð á undanförnum áraug. Það er álíka há giftingartíðni og í Noregi og Finnlandi. Hæst er hún á Norðurlöndum í Danmörku, nær sjö af hverjum þúsund.

Skilnaðartíðni hefur hins vegar staðið í stað hér á landi undanfarin ár og reyndist uppsafnað skilnaðarhlutfall, sem eru þau hjónabönd sem enda með skilnaði, 39 prósent árið 2006. Alls staðar á Norðurlöndum er skilnaðarhlutfall hærra en hér, hæst í Svíþjóð en þar enda 55 prósent hjónabanda með skilnaði.

Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að giftingaraldur hefur hækkað jafnt og þétt frá því um 1980 og er meðalgiftingaraldur kvenna 31,7 ár og karla 33,9 ár. Til samanburðar var meðalgiftingaraldur árin 1971-1975 22,9 ár hjá konum og 24,8 ár hjá körlum en þá var meðalgiftingaraldur lægstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×