Innlent

Ölvaður maður beit tvo lögreglumenn

MYND/Guðmundur

Lögreglan á Hvolsvelli þurfti í liðinni viku að hafa afskipti af manni vegna heimilisófriðs en hann var gestur í húsi í umdæmi lögreglunnar. Maðurinn mun hafa verið ölvaður og þegar færa átti hann í fangageymslur á Selfossi réðst hann að lögreglumönnum og náði að bíta tvo þeirra auk þess sem hann eyðilagði gleraugu annars lögreglumannsins. Það þarf vart að taka það fram að maðurinn gisti fangageymslur þar til ölvíman rann af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×