Lýst eftir vitnum að ofsaakstri tveggja manna 20. febrúar 2007 13:44
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að ofsaakstri tveggja ökumanna um síðustu helgi en hún segir að þá hafi nánast allar umferðarreglur verið þverbrotnar. Öðrum var veitt eftirför um fjölmargar götur borgarinnar frá klukkan 22.40 á föstudagskvöld. Sá ók gráum Hyundai Elantra en leið hans lá m.a. um Miklubraut, Skeiðarvog, austur Suðurlandsbraut, Sæbraut, Reykjanesbraut, Smiðjuhverfi í Kópavogi, Stekkjarbakka, Höfðabakka, Arnarbakka, Álfabakka, Reykjanesbraut og Sæbraut að gatnamótum Súðarvogs þar sem lögreglan stöðvaði för hans. Ökumaðurinn, 21 árs karlmaður, hefur ítrekað gerst sekur um umferðarlagabrot en hann var auk þess með útrunnið ökuskírteini. Með honum í bílnum voru tveir piltar, báðir 18 ára. Hinum ökumanninum var veitt eftirför á fimmta tímanum aðfaranótt laugardags. Sá ók ljósgráum Mercedes Benz en leið hans lá um Suðurlandsveg, Breiðholtsbraut og Reykjanesbraut að Mjódd þar sem lögreglan stöðvaði för hans. Ökumaðurinn, 21 árs karlmaður, hefur nokkrum sinnum áður gerst sekur um umferðarlagabrot. Báðir ökumennirnir eru jafnframt grunaðir um ölvunarakstur. Þeir voru yfirheyrðir um helgina. Annar bar við minnisleysi en hjá hinum var líka fátt um svör. Með háttalagi sínu stefndu þeir sjálfum sér og öðrum í mikla hætta en brot þeirra geta varðað allt að 6 ára fangelsi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málin eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Sérstaklega er óskað eftir að ökumaður hvítrar Mercedes Benz sendibifreiðar gefi sig fram. Sá ók Breiðholtsbraut á sama tíma og annar ökufantanna var þar á ferð.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira