Innlent

Harmar að ekki náist sátt

Skólastjórafélag Reykjavíkur harmar það að samninganefndir Launanefndar sveitarfélaganna og Kennarasambands Íslands hafi ekki náð samkomulagi um framkvæmd endurskoðunarákvæðis greinar 16.1. í samningi aðila frá árinu 2004.

Skólastjórafélagið lýsir jafnframt yfir áhyggjum sínum komist aðilar ekki að niðurstöðu innan skamms.

Þá skorar fundurinn á samninganefndirnar að taka upp þráðinn að nýju og freista þess að ná samkomulagi sem tryggir starfsfrið innan grunnskólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×