Reynir á íslensku bankana, segir S & P 21. febrúar 2007 10:47 MYND/Vilhelm
Nú reynir á íslensku bankana þegar hægir á íslensku efnahagslífi og erfiðarar verður að nálgast lánsfé á erlendum mörkuðum, segir greiningarfyrirtækið Standard & Poors í nýrri skýrslu um íslensku bankana. Í tilkynningu frá Standard & Poors vegna skýrslunnar segir að langtímahorfur fyrir bankanna séu góðar í ljósi blómstrandi og sveigjanlegs efnahagslífs á Íslandi. Hins vegar standi bankarnir frammi fyrir fyrsta alvöru prófinu á því viðskiptalíkani sem þeir hafi þróað undanfarin þrjú ár nú þegar hægi á hagvexti og dragi úr möguleikum á lánum. Bent er á að viðskiptabankarnir þrír, Glitnir, Kaupþing og Landsbankinn, ráði yfir um 90 prósent markaðarins á Íslandi en umsvif þeirra hafi vaxið mikið annars staðar á Norðurlöndum og í Bretlandi. Þeirr eigi nú meiri eignir í útlöndum en á heimamarkaði. Minnkandi eftirspurn og fjárfesting á Íslandi ásamt því sem það dregur úr vexti bankanna á alþjóðavettvangi muni þó leiða til lakara starfsumhverfis fyrir bankana. Ef ekki verði harðari lending í efnahagslífinu en áætlað sé eigi bankarnir þrír þó að geta tekist á við þessar aðstæður og þar skipti miklu máli hve víða þeir séu komnir með starfsemi og hve sterk staða þeirra sé innanlands. Mesta hættan sem bankarnir standi frammi fyrir stafi af öðrum stórum útrásarfyrirtækjum. Ef þau verði fyrir skakkaföllum geti það haft áhrif á afkomu bankanna vegna þess hversu náin tengsl séu á milli bankanna og þessara stóru fyrirtækja.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira