28 mál hjá Samkeppniseftirlitinu frá 2005 eða eldri 21. febrúar 2007 14:19
85 stjórnsýslumál voru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu nú um miðjan febrúar og eru 28 þeirra frá árinu 2005 eða eldri. Þetta kom fram í svari Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. Anna benti að kvartanir hefðu borist frá ýmsum aðilum um það hversu langur afgreiðslutími mála væri hjá eftirlitinu og spurði ráðherra hversu mörg mál væru óafgreidd frá 2005 til 2007 og eldri. Jafnframt spurði hún ráðherra hvað hann teldi vera ásættanlegan afgreiðslutíma kvartana sem berast Samkeppniseftirlitinu. Jón Sigurðsson sagði í svari sínu að um 85 stjórnsýslumál væru nú hjá Samkeppniseftirlitinu, athuganir og eftirlit en ekki væru teknar með ýmsar fyrirspurnir. 25 málanna hefðu hafist á þessu ári, 33 í fyrra og 28 væru frá 2005 eða fyrr. Sagði hann enn fremur að með breytingum á samkeppnislögum hefði Samkeppniseftirlitið leyst Samkeppnisstofnun af hólmi um mitt ár 2005. Þá hafi verið um 80 mál óafgreidd og nú væri um 20 frá Samkeppnisstofnun enn í vinnslu. Benti Jón enn fremur á að talsverð málavelta hefði verið hjá Samkeppniseftirlitinu frá því í júní í fyrra. 86 málum hefði verið lokið síðan þá en 67 mál tekin upp. Varðandi spurninguna um það hvað væri ásættanlegur afgreiðslutími sagði Jón ekki væri hægt að gefa endanlegt svar um það. Benti hann á að rannsóknir eftirlitsins væru oft viðamiklar og því til stuðnings benti hann á að úrskurðir væru allt frá tveimur blaðsíðum til þúsund. Sagði hann flestum málum ljúka innan hálfs árs eftir að til þeirra væri stofnað en finna mætti mál sem tækju mjög langan tíma, hugsanlega vegna umfangs þeirra. Anna Kristín gagnrýndi það að 28 mál frá árinu 2005 eða eldri væru enn óafgreidd því það hlyti að teljast óeðlilega langur tími, sértaklega þegar um lítil fyrirtæki væri að ræða sem væru í samkeppni við stærri fyrirtæki. Mikilvægt að þau fengju svör við sínum kvörtunum á sem stystum tíma.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira