Búist við deilum um hjónavígslu samkynhneigðra 25. apríl 2007 06:45 Sr. Bjarni Karlsson prestur í Lauganeskirkju
Séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, segist ekki svartsýnn á það að samstaða náist á prestastefnu í dag um tillögu 42 presta og guðfræðinga þess efnis að heimila hjónabönd samkynhneigðra. Séra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, býst við miklum deilum um tillöguna. Prestastefnan var sett á Húsavík í gær og í dag fara fram umræður, meðal annars um tillögu prestanna fjörutíu og tveggja. Kynnt verða endurskoðuð drög að ályktun kenningarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem gert er ráð fyrir að prestum verði heimilað að blessa samvist samkynhneigðra, eins og gert hefur verið á undanförnum árum, og er tillagan breytingartillaga við ályktunina, þar sem lagt er til að gengið verði skrefi lengra og hjónabönd samkynhneigðra heimiluð. Geir Waage prestur í Borgarfirði Myndir frá 1974-1980 af ýmsu fólki nafngreindu í athugasemdum. Ef ekki finnast gamlar, þá nýrri. „Þetta er framtíðarmál, hvort sem þetta gerist núna í einu skrefi eða ekki,“ segir Bjarni. Hann segir ályktunardrög kenningarnefndarinnar einnig skref í rétta átt. „Þar er því slegið algjörlega föstu að það sé ekki skilningur íslensku þjóðkirkjunnar að Biblían mótmæli samkynhneigð.“ Bjarni segist ekki eiga von á að tillaga kenningarnefndarinnar mæti mikilli andstöðu. Geir segist þó ekki geta tekið afstöðu til tillögunnar strax. „Hvernig um tillöguna verður fjallað eða rætt, ræðst algjörlega af því hvernig biskupinn leggur hana fram. Þeir vilja hins vegar augljóslega búa til eitthvað sem heitir hjónaband fólks af sama kyni og ég er þeirrar skoðunar að það gangi ekki upp. Við breytum ekki þeirri skikkan skaparans að það eru karl og kona sem eiga í hjónabandi.“ Ákvörðun prestastefnunnar verður síðan tekin fyrir á kirkjuþingi í haust til samþykktar.
Mest lesið Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Kennarar óttast framkvæmd símafrís Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Innlent Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Innlent Öll áhöfnin talin af Erlent Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Innlent Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Innlent Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Innlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent Fleiri fréttir Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Plastbarkadómi áfrýjað og hvalavinir ósáttir við ráðherra Þrjár vikur til stefnu í umfangsmiklu fíkniefnamáli Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamáli „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Sjá meira