Erlent

Kviðdómur settur í málið

Díana prinsessa og Dodi al Fayed.
Faðir Dodis vann áfangasigur fyrir dómstólum í gær.
Díana prinsessa og Dodi al Fayed. Faðir Dodis vann áfangasigur fyrir dómstólum í gær.

Auðkýfingurinn Mohammed al Fayed, eigandi Harrods-verslananna í Bretlandi, vann í gær sigur þegar dómstóll úrskurðaði að kviðdómur yrði kallaður saman fyrir réttarrannsókn á dauða Dodi Fayed, sonar hans og Díönu prinsessu.

„Þetta eru ekki leiðarlokin, en þetta er mikilvægt skref. Nú þarf að leyfa kviðdómnum að heyra allan málflutninginn, en ég óttast að reynt verði að halda honum frá þeim. Ef svo verður, þá þarf ég að heyja eina baráttuna enn,“ sagði al Fayed við fréttamenn fyrir utan dómshúsið í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×